Neytendur eru hvattir til þess að lesa skilmála þessa vandlega áður en þeir versla í vefverslun Solgleraugu.is / Gleraugnamiðstöðin ehf, www.solgleraugu.is Um notkun vefsíðu og vefverslunar Solgleraugu.is gilda skilmálar þessir. Með því að nota vefsíðu og vefverslun Solgleraugu.is samþykkir og viðurkennir neytandi að hann hafi kynnt sér, skilið og samþykkt, án fyrirvara, skilmála þessa, eins og þeir eru á hverjum tíma. Solgleraugu.is/ Gleraugnamiðstöðin ehf, kt. 531072-0499, er staðsett að Laugavegi 24 Símanúmer er 5520800. Solgleraugu.is áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum þessum án fyrirvara.
Verð:
Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur. Solgleraugu.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunar er að ræða.
Vörur til einkanota:
Vörurnar í vefverslun Solgleraugu.is eru eingöngu til persónulegra nota. Undir engum kringumstæðum er heimilt að stunda endursölu á vörum Solgleraugu.is án tilskilinna leyfa. Solgleraugu.is áskilur sér rétt til að stöðva afgreiðslu pantana eða halda eftir hluta þeirra ef talið er að þær brjóti í bága við þessa skilmála.
Nákvæmni upplýsinga:
Reynt er eftir bestu getu að hafa réttar upplýsingar og vörumyndir í vefverslun. Upp geta komið tilvik þar sem um minniháttar litamun eða umbúðamun getur verið að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.
Greiðsluleiðir:
Hægt er að inna greiðslu af hendi í vefverslun með greiðslukorti, Netgíro eða Pei. Solgleraugu.is er eigandi vörunnar þar til andvirði hennar er að fullu greitt.